Prófíll

  • Nafn: Svana Hrönn Jóhannsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Sölumaður
  • Hjúskaparstaða: á lausu
  • Um mig: hress og skemmtileg :o)

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Back in the days

27. mars 2009 klukkan 12:49
Fékk sent skemmtilegt mail...mæli með því að þið lesið þetta...maður hugsar oft til baka og brosir... Nánar
Svana Hrönn Jóhannsdóttir
1 athugasemd

Árið 2008...

31. desember 2008 klukkan 23:03
Þá kemur að hinum árlega pistli...fer lauslega í gegnum árið...:)... Nánar
Svana Hrönn Jóhannsdóttir
2 athugasemdir

HVAÐ ER ÁST?

20. nóvember 2008 klukkan 15:27
Gefðu þér 3 mín. til að lesa þetta. Það er alveg þess virði. Fagfólk lagði spurninguna fyrir hóp af 4 - 8 ára börnum, "Hvað þýðir Ást?"... Nánar
Svana Hrönn Jóhannsdóttir
7 athugasemdir

Stúlkan kyssti á stein..

03. nóvember 2008 klukkan 16:17
Komið þið sæl

Núna er liðinn mánuður frá síðasta bloggi. Margt hefur gengið á og margt ekkiCool.
Lífið gengur sinn vanagang...alltaf fyrst í hægri buxnaskálmina, sný bolnum vitlaust, mæti í vinnunna og ekki í ræktina. Gerði þau mistök að kaupa mér "kreppulíkamsræktarkort" í nautilus. Stutt fyrir mig að fara í Salalaugina og taka á því þar, en ég er svo ekki að fíla það að vera þarna...maður andar ofan í hálsmálið á næsta manni, en ég vona að þetta venjist.

Þið hafið kannski heyrt um þessu kreppu, sem gengur yfir landið. Því miður eru alltof margir að missa vinnuna eða að fara að missa vinnuna. Ég segi það samt að nóg vinnu er að fá. Fólk þarf bara að sætt sig við aðeins lægri laun og vinna við ummönnunnarstörf eða starf sem ræstitæknir, ekki slæmt það Wink. En munið bara að á meðan þið kaupið Coca cola þá verð ég áfram í minni vinnu Smile.

Það var glímumót á Reyðarfirði í október. Mér tókst að sigra mínar viðureignir. Eftir mót tóku við æfingar fyrir Úrvalshóp, þar eru margir sterkir og hæfileikaríkir krakkar sem vonandi halda áfram á sömu braut. Það er mót núna um helgina í Ármannshúsinu, byrjar klukkan 13, svona fyrir áhugamenn um íslenska glímuWink.

Það fór kannski framhjá einhverjum að ég tók þátt í SingingBee, ásamt 5 manna hóp fyrir hönd Vífilfels. Já, þetta var jafn kjánalegt og þetta leit út fyrir að vera. En ég væri að ljúga af ykkur ef ég myndi segja að þetta hafi verið leiðinlegt, enda mjög skemmtilegur hópur frá Vífilfelli sem fór. (og fyrir þá sem búa í Svíþjóð eða á Ítalíu geta séð þáttinn á netinu á skjárinn.is)Cool

Svæðisstjórarnir Cool í Vífilfelli fóru á hestbak í Laxnesi fyrir stuttu. Verð að segja að hópurinn sem ég vinn með er mjög skemmtilegur. Heldur manni alveg við efnið Cool.

1. vetrardagur var...já 1. vetrardag. Mikil skemmtun var í Dölunum og mættum við systurnar ásamt Rakel og Heiðu með fótboltalið. Eftir mikið drama, svita og mörk héldum við á bikarnum Laughing. Um kvöldið var haldið á ball, og var það bara hin fínasta skemmtun, alltaf gaman á sveitaböllunum.

en jæja...

ætla að segja þetta gott
þangað til næst...njótið lífsins, núna er rétti tíminnSmile

lov jú
Svana
Svana Hrönn Jóhannsdóttir
5 athugasemdir

Lítill drengur..

03. október 2008 klukkan 16:32

Hérna er Pálmi bróðir með litla strákinn sinn....myndarlegir Hlæjandi



kv
Svana...að fara að keppa meðan allir eru að smala...
Svana Hrönn Jóhannsdóttir
5 athugasemdir

Þannig fór það nú..

14. september 2008 klukkan 19:40
Fínt að frétta síðan síðast...

eða fínt...eiginlega bara ekkert

Lífið gengur bara sinn vana gang....vinna, æfing (þegar ég nenni Öskrandi)sofa, djamm...

Glímuæfingarnar eru svo að byrja á þriðjudaginn...geðveikt Brosandi

styttist í smalamennskur og allt það stúss

en jæja..ætla að fara að einbeita mér að því að gera ekki neitt Óákveðinn

heyrumst

Svana og hressa liðið Svalur

Svana Hrönn Jóhannsdóttir
6 athugasemdir

"Þetta var powerið!!"

22. ágúst 2008 klukkan 14:44
Eins og fáir hafa látið fram hjá sér fara eru Íslendingar að fara að spila við Frakka um Ólympíugullið á sunnudagsmorgun...þetta eru snillingar...og þeir eru að standa sig eins og hetjur...frábær karakter...og gaman að hlusta á viðtölin við þá...þeir eru rifnir niður á jörðina í stað þess og hoppa og skoppa um allt eins og þeir séu búnir að vinna mótið...vona samt að þeira fá að gera það ÞEGAR þeir vinna Frakkana!! 34-31...ekkert rugl

ef Snorri Steinn, Óli Stef eða Guðjón Valur verða ekki valdir sem Íþróttamaður ársins þá er eitthvað skrítið í gangi!! Enginn toppar þennan árangur út árið!!




úr að ofan svo Glottandi

svo bara djamm og menningarnótt...sjáumst...kannski Svalur

kv
Svana...
"Ísland er stórasta land í heimi!!"
Svana Hrönn Jóhannsdóttir
5 athugasemdir

EYJAR 2008

05. ágúst 2008 klukkan 21:02

Þjóðhátíð 2008:

  • Úns úns
  • OMG
  • Brjóst
  • *Sleikur* "ég er hommi" *sleikur*
  • Nagli>læknir>lyf>sprauta>vælubíllinn
  • Lellur
  • Knús
  • Trallalalalalalaaaa
  • Piss>buxur
  • Heiðrún>tjörn>bleyta>buxur
  • Blys>Lífið er yndislegt
  • Flugeldar, brekkusöngur, Bubbi, Páll Óskar
  • Hæ...ég þekki alla
  • Bekkjarbíll
  • "þetta drekkur sig ekki sjálft þetta helvíti"
  • Rigning>drulla>Heiðrún og Kata>Brekkubrun>skítugar
  • Ding dong ding ding ég skil ekki orð af því sem þú ert að segja
  • Fullikallinn
  • Þunnikallinn
  • Vindsæng
  • Marta og Silli...suprise
  • Gummi>dauður>hattur>rjómaterta
  • "úr að ofan!!"








ég mæti aftur á næsta ári!!

Svana Hrönn Jóhannsdóttir
3 athugasemdir

....Kópavogur

25. júlí 2008 klukkan 22:35
Jæja...þá er ég flutt í Kópavoginn...

alveg búin að koma mér fyrir....vantar bara sjónvarpið, sófann og eldhúsborðið...og alles klar Svalur fékk góða hjálp frá Óla og svo Darra og Breka....algjörir snillingar

fínt að vera aftur komin að vinna...smá skipulag og maður er vaknaður nógu snemma til þess að morgunmatur sé borðaður Glottandi....
er bara róleg fyrir vestan núna....aðeins að hlaða batteríin fyrir þjóðhátíð sem er næstu helgi!! Svalur


fékk að taka aðeins taka þátt í gæsuninni hennar Regínu Ósk...var beðin um að glíma aðeins við hana fyrir utan World Class...mjög gaman af því Brosandi

ætlaði aðeins að láta vita af mér...

endilega að kíkja í heimsókn...

komið vel klædd....það er mjög kalt þar!...held það vanti ofn Öskrandi 

en gott í bili

Svana


Svana Hrönn Jóhannsdóttir
4 athugasemdir

Allir að læra svo :)

17. júlí 2008 klukkan 20:28
Brim og Boðaföll

Sól, lýstu mína leið,
svo logi sundin blá, á leiðinni til þín.
Nótt, leiðin verður greið
Mér liggur lífið á, því ég verð senn á leiðarenda.

Kominn þessa leið,
Einfaldlega til að segja þér,
Án þín er ég bjargarlaus í neyð,
En ekki þegar þú ert hér hjá mér.

Fyrst, er augum á þig leit,
þá innra með mér fann, að eitthvað snerti mig.
Þá, og eins vel nú ég veit,
að brim og boðaföll, gætu ekki stöðvað okkur.

Kominn þessa leið,
Einfaldlega til að segja þér,
Án þín er ég bjargarlaus í neyð,
En ekki þegar þú ert hér hjá mér.

Já ég er Kominn þessa leið,
Einfaldlega til að segja þér,
Án þín er ég bjargarlaus í neyð,
En ekki þegar þú ert hér hjá mér.

Nú, nóttin læðist inn, og breiðir út sinn faðm,
Þú brosir til mín eins og í fyrsta sinn,
lífið byrjar hér, inn í Herjólfsdal

Kominn þessa leið,
Einfaldlega til að segja þér,
Án þín er ég bjargarlaus í neyð,
En ekki þegar þú ert hér hjá mér.


Já ég er Kominn þessa leið,
Einfaldlega til að segja þér,
Án þín er ég bjargarlaus í neyð,
En ekki þegar þú ert hér hjá mér.
Ekki þegar þú ert hér hjá mér.

En ekki þegar þú ert hér hjá mér.
Ekki þegar þú ert hér hjá mér.
Þegar þú ert hér hjá mér.

Ekki þegar þú ert hér hjá mér

Ekki þegar þú ert hér hjá mér
Svana Hrönn Jóhannsdóttir
Engin athugasemd